Lenya Rún Taha Karim
Lenya Rún Taha Karim

Lenya Rún Taha Karim varaþingmaður Pírata hlaut flest atkvæði í prófkjöri flokksins í Reykjavík. Mun hún leiða Reykjavíkurkjördæmi norður. Björn Leví Gunnarsson þingmaður náði 2. sæti í prófkjörinu, Halldóra Mogensen þingmaður hafnaði í því þriðja og Andrés Ingi Jónsson þingmaður í fjórða. Lenya skákaði þar með þremur sitjandi þingmönnum flokksins.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata mun leiða lista flokksins í Kraganum. Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir leiðir Norðvesturkjördæmið, Theodór Ingi Ólafsson leiðir Norðausturkjördæmi og Týr Þórarinsson leiðir Suðurkjördæmi.