Inga Dadda Karlsdóttir fæddist í Reykjavík 21. ágúst 1954. Hún lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 5. október 2024 eftir baráttu við krabbamein.

Foreldrar Ingu voru Sesselja Davíðsdóttir verslunarkona, f. 1928, d. 2000, og Karl Svanhólm Þórðarson hafnsögumaður, f. 1934, d. 2024.

Inga var ein af átta systkinum. Systkini hennar samfeðra eru Kristín, f. 1952, Guðmundur Sölvi, f. 1956, Bergur Bjarni, f. 1959, Gunnar Ásgeir, f. 1960, Laufey, f. 1961, Fanney, f. 1965, og Margrét Eygló, f. 1970.

Hinn 6. maí 1978 giftist Inga Gunnari Halldóri Jónassyni kaupmanni, f. 23. júlí 1953. Foreldrar hans voru Jónas M. Gunnarsson kaupmaður, f. 1924, d. 1988, og Sigríður Rakel Þórarinsdóttir húsmóðir, f. 1920, d. 2005.

Börn Ingu

...