40 ára Lovísa er fædd og uppalin í Kópavogi en býr í Garðabæ ásamt fjölskyldu sinni. Hún starfar sem tannlæknir og útskrifaðist frá Háskóla Íslands árið 2023. Hún vinnur á tveimur tannlæknastofum: Betra brosi í Hlíðasmára 14 í Kópavogi og Tannlæknastofu Tinnu Bjargar, Skipholti 33 í Reykjavík. Lovísa lærði klassískan söng frá 9 ára til 18 ára og keppti í ýmsum söngkeppnum á grunn- og framhaldsskólastigi, þ. á m. Vælinu, söngkeppni Verzlunarskóla Íslands. Áhugamálin eru sundferðir, golf og skíði.


Fjölskylda Maki Lovísu er Viktor Páll Svavarsson, f. 1992, rafvirki hjá Marel. Dóttir þeirra er Guðrún Sonja, f. 2024. Móðir Lovísu er Sonja Reynisdóttir, f. 1963, d. 2015. Hún var innkaupastjóri fyrir Adidas hjá Sportmönnum ehf.

Leiðrétting

Þau leiðu mistök voru gerð í afmælisgreininni um Lovísu Þrastardóttur að hún var sögð vera 40 ára. Hún á 30 ára afmæli. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.

...