Akureyri Kristijan Jajalo hefur leikið með KA frá árinu 2019.
Akureyri Kristijan Jajalo hefur leikið með KA frá árinu 2019. — Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Knattspyrnumarkvörðurinn Kristijan Jajalo er á förum frá KA eftir sex ár fyrir norðan. Bosníumaðurinn hefur leikið hér á landi frá árinu 2016 er hann gekk í raðir Grindavíkur.

Frá Grindavík lá leiðin til KA árið 2019, þar sem hann hefur leikið allar götur síðan. Jajalo hefur verið varamarkvörður Steinþórs Más Auðunssonar að undanförnu. Jajalo hefur leikið 101 leik í efstu deild Íslands og 12 leiki í 1. deildinni.