Alexis Morris var stigahæst hjá Grindavík þegar liðið vann stórsigur gegn nýliðum Hamars/Þórs í 4. umferð úrvalsdeildar kvenna í körfuknattleik í Hveragerði í gær. Leiknum lauk með 46 stiga sigri Grindavíkur, 97:51, en Grindavík fer með sigrinum upp í 2. sæti deildarinnar í 4 stig. »23