Jórunn Alexandersdóttir fæddist í Reykjavík 6. nóvember 1935. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Grund 13. október 2024.

Foreldrar hennar voru Alexander Guðjónsson, f. 14. júlí 1899, d. 28. nóvember 1975, og Magnea Guðrún Erlendsdóttir, f. 5. mars 1907, d. 28. janúar 1994. Systir hennar var Þorbjörg Hulda, f. 28. febrúar 1927, d. 14. mars 2005, gift Ingimar Sigurðssyni, f. 3. ágúst 1924, d. 7. desember 2005.

Jórunn giftist eftirlifandi eiginmanni sínum, Lórens Rafni Kristvinssyni, f. 24. júní 1935, þann 7. nóvember 1956. Börn þeirra eru: 1) Alexander Rafn, f. 5. maí 1957, giftur Stellu Björgvinsdóttur, f. 29. mars 1966. Hann var áður giftur Bryndísi Ólafsdóttur, f. 31. desember 1953. Sonur Alexanders og Bryndísar er Elvar Rafn, f. 11. maí 1986. Fyrir átti Bryndís Dagnýju, f. 1976. Börn Stellu frá fyrri sambúð eru Martin Jóel, f. 1987, Rakel Sara,

...