Anna Dóra Þorgeirsdóttir fæddist 17. janúar 1962. Hún lést 7. október 2024.

Útför Önnu Dóru fór fram 21. október 2024.

Ég finn fyrir blendnum tilfinningum eftir að hafa fylgt mömmu í gegnum síðustu daga hennar. Þótt það veiti mér létti að hún hafi nú loks fengið frið og hvíld frá veikindinum, er afar sárt að sjá á eftir henni, og ég mun sakna hennar ómælt.

Þrátt fyrir missinn er ég mjög þakklátur fyrir allan þann tíma sem við áttum saman í gegnum veikindin, og fyrir allar heimsóknirnar árin áður, þar sem ég dvaldi oft í allt að tvær eða þrjár vikur í senn. Það var alltaf svo góð tilfinning þegar Íslandsför nálgaðist. Mamma hafði yfirleitt fundið einhver kjarakaup sem ég átti að græja fyrir heimkomuna, og hún var alltaf mætt upp á flugvöll til að sækja mig, yfirleitt með Auði frænku sér við hlið,

...