Pálína Guðrún Helga Jónsdóttir 28. júlí 1924. Hún lést 7. október 2024.

Útförin fór fram 23. október 2024.

Við kveðjum nú kæra vinkonu úr hópi okkar Gammasystra í Delta Kappa Gamma (DKG) á Íslandi, samtökum kvenna í fræðslustörfum. Pálína okkar er látin og hennar verður sárt saknað í okkar hópi. Þrátt fyrir háan aldur var Pálína virk í starfi deildarinnar allt fram á það síðasta og fagnaði með okkur 100 ára afmæli sínu í lok síðasta starfsárs. Þar steig hún hnarreist og flott í pontu og við þakklátar að hafa getað fagnað með henni. Það var mjög lýsandi óskalag sem sungið var með Pálínu í afmælisfögnuðinum en það var „Það liggur svo makalaust ljómandi á mér“ enda var hún einstaklega glaðlynd og jákvæð. Hún hefur verið okkur sem yngri erum mikilvæg fyrirmynd um svo margt.

Pálína var ein

...