hafa e-ð um hönd merkir að nota e-ð. „Jafnvel á afslöppuðum bindindismótum er bannað að hafa áfengi um hönd.“ Að hafa e-ð við höndina þýðir að hafa e-ð tiltækt

hafa e-ð um hönd merkir að nota e-ð. „Jafnvel á afslöppuðum bindindismótum er bannað að hafa áfengi um hönd.“ Að hafa e-ð við höndina þýðir að hafa e-ð tiltækt. „Í stafsetningardeilum er gott að hafa hafnaboltakylfu við höndina.“ En sá sem hefur „haft áfengi við hönd“ hefur villst á forsetningum (eða haft áfengi um hönd?).