Mikið verk Útvegg komið fyrir á austasta hluta meðferðarkjarnans.
Mikið verk Útvegg komið fyrir á austasta hluta meðferðarkjarnans. — Morgunblaðið/Eyþór

Ásbjörn Jónsson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs hjá Nýjum Landspítala ohf., segir fyrirhugaðan innanhússfrágang við nýjan Landspítala munu verða stærsta verkefnið af því tagi á Íslandi.

„Þótt það beri mikið á uppsteypunni er hún ekki sérlega mannaflafrek. Það sem er mannaflafrekt í þessu er allur innanhússfrágangurinn en við gerum ráð fyrir að hér verði 600-700 manns að störfum á hápunkti framkvæmdanna,“ segir Ásbjörn.

Fjallað er um uppbyggingu meðferðarkjarnans og nálægra bygginga í Morgunblaðinu í dag en byggingarnar eru samtals um 120 þúsund fermetrar.

Áformað er að ljúka uppsetningu útveggja á meðferðarkjarnanum í febrúar og taka nýtt bílastæðahús við Hringbraut í notkun á fyrri hluta næsta árs. » 20-22