Hildur Jónsdóttir fæddist 1. ágúst 1946 á Ísafirði. Hún lést á Landspítalanum 8. október 2024.

Foreldrar hennar voru Jón Kristjánsson meistari í húsgagnabólstrun, f. 14. febrúar 1919, d. 1. nóvember 1996, og Þóra Þórðardóttir klæðskeri, f. 17. mars 1923, d. 10. janúar 2000.

Hildur átti eina systur, Elísabetu Guðrúnu, f. 8. maí 1950.

Hildur giftist Þór Sigurjónssyni, f. 13. mars 1947, þann 14. nóvember 1965. Börn þeirra eru fjögur: 1) Kristín Ásta, f. 1. maí 1965, gift Herði Valgeirssyni og eiga þau saman þrjár dætur, Sunnevu, Heiði og Heru. 2) Sigurjón Örn, f. 11. mars 1967, kvæntur Laufeyju Bjarnadóttur og eiga þau saman þrjár dætur, Sóleyju Karen, Þóreyju Birtu og Bjarneyju Rós. 3) Ása, f. 13. júlí 1971, gift Ágústi Gylfasyni, eiga þau saman soninn Daníel Þór og dæturnar Lovísu Rut og Hildi

...