Handknattleiksmaðurinn Sveinn Jóhannsson gekk í raðir norska stórliðsins Kolstad frá Minden í Þýskalandi fyrir tímabilið. Kolstad er besta lið Noregs um þessar mundir og spilar við bestu lið heims í Meistaradeild Evrópu. Sveinn kann vel við lífið bæði innan og utan vallar hjá Kolstad og ekki skemmir fyrir að hann er kominn aftur í íslenska landsliðið eftir fjarveru. » 81