Fiðrildi Pterourus bjorkae er nefnt eftir Björk Guðmundsdóttur.
Fiðrildi Pterourus bjorkae er nefnt eftir Björk Guðmundsdóttur. — Ljósmynd/Harry Pavulaan

Bandarískur skordýrafræðingur hefur í vísindagrein lýst tegund af algengu amerísku fiðrildi sem ekki hafi verið greind sérstaklega áður. Hefur hann gefið fiðrildinu nafnið Pterourus bjorkae til heiðurs Björk Guðmundsdóttur.

Um er að ræða svölufiðrildi, ­Tiger Swallowtail á ensku, sem er algengt í Norður-Ameríku. Í grein í The Taxonomic Report sem birt er á vef Nebraska-háskóla segir skordýrafræðingurinn Harry Pavulaan að margir sérfræðingar hafi rannsakað þessi fiðrildi en hópar þeirra í norðausturhluta Bandaríkjanna hafi lítið verið skoðaðir.

Mynstrið á vængjum Pterourus bjorkae bendi til þess að tegundin hafi orðið til við blöndun erfðaefnis fiðrildahópa í Kanada og á Nýja-Englandi á síðustu ísöld.

Fram kemur á pödduvef Náttúrufræðistofnunar að svölufiðrildi séu stór og litskrúðug og finnist víða á norðurhveli jarðar, í Norður-Afríku, Evrópu, Asíu og Norður-Ameríku. Bolur þeirra er um 24 millimetrar að lengd og vænghaf um 80 millimetrar.

Aðeins sé

...