Óskar Örn Davíðsson fæddist 30. desember 1994. Hann lést 5. október 2024.

Foreldrar hans eru Auður S. Jónsdóttir, f. 8. janúar 1957, og Davíð E. Guðmundsson, f. 15. apríl 1964.

Bróðir Óskars, sammæðra, er Jóhann I. Kristjánsson, f. 21.3. 1974.

Óskar ólst upp í Garðabænum og var á Bæjarbóli, í Flata- og Garðaskóla. Óskar hafði frá blautu barnsbeini mikinn áhuga á farartækjum og vélum.

Hann vann hjá föður sínum í jarðvegsvinnu um árabil og lauk meiraprófi og vélaprófi.

Snemma árs 2022 var Óskar Örn ráðinn til golfklúbbs GKG til að sjá um vélaflota þeirra og sinna umhirðu og alhliða störfum. Óskar var velmetinn meðal samstarfsfólks síns hjá GKG og var í námi í

...