Andrew „Donut“ Larsen, heimilislaus maður frá Bandaríkjunum, varð tónlistarstjarna eftir að hafa boðið að spila lag í skiptum fyrir bjór. Ókunnugur maður, Dominic Alexander, deildi flutningi hans á TikTok, þar sem lagið „Ghost of You“ sló í gegn með nærri 17 milljón áhorfum. Alexander, sem var djúpt snortinn af hæfileikum Donuts, hjálpaði honum að taka lagið upp, sem nú er aðgengilegt á streymisveitum með yfir 600 þúsund spilunum.

Nánar um málið í jákvæðum fréttum á K100.is.