Guðmundur Einarsson fæddist í Reykjavík 18. maí 1948. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Grund við Hringbraut 10. október 2024.

Foreldrar Guðmundar voru hjónin Einar Eggertsson kafari, f. 15. október 1902, d. 9. september 1987, og Sveinbjörg Árnadóttir húsmóðir, f. 31. desember 1909, d. 16. september 1999.

Systkini Guðmundar eru: Helga, f. 26. maí 1931, Sigríður Halla, f. 9. október 1932, d. 17. nóvember 2013, Hilmar, f. 24. nóvember 1940, d. 10. febrúar 2023, og Margrét, f. 6. janúar 1943.

Eftirlifandi eiginkona Guðmundar er Kristjana Karlsdóttir, f. 24. september 1944. Börn þeirra eru: 1) Sveinbjörg, 11. maí 1971. Sambýlismaður hennar er Jóhannes Kjartansson, f. 3. apríl 1967. Börn þeirra eru Jóhanna Rós, f. 16. ágúst 2003, Inga Fanney, f. 29. júní 2006, og Kjartan Karl, f. 22. nóvember 2009.

...