Örn Bjarnason fæddist á Akureyri 19. apríl 1948. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi 30. september 2024.

Foreldrar hans voru Unnur Margrét Guðmundsdóttir húsmóðir, f. 13. maí 1929, og Bjarni Guðjón Bjarnason bryti, f. 3. janúar 1926. Örn ólst upp með móður sinni hjá foreldrum hennar, Guðmundi Jósefssyni, f. 21. ágúst 1892, og Hólmfríði Guðbrandsdóttur, f. 9. júní 1888. Hálfsystur Arnar sammæðra eru Hólmfríður, f. 1. júlí 1956, Ingveldur, f. 6. september 1962, Helga Ragnheiður, f. 12. apríl 1964, og Aðalbjörg, f. 15. desember 1965. Einnig átti hann fjögur hálfsystkini samfeðra.

Sonur Arnar með Maríu Margréti Jónsdóttur, f. 27. febrúar 1951, er Jón Kristján, f. 7. maí 1970, kvæntur Elínu Sigríði Sævarsdóttur, f. 23. september 1983, börn þeirra eru Sigríður Lóa, f. 10. febrúar 2011, Jens Óskar, f. 1. maí 2013, og Eydís Lilja, f. 10. desember

...