Hörður Ingi Jónsson fæddist í Reykjavík 19. desember 1980. Hann lést 9. október 2024.

Foreldrar hans eru Erna Harðardóttir, f. 24. ágúst 1959, og Jón Magnús Sigurðsson, f. 29. júlí 1951.

Systkini Harðar Inga eru Þórir Örn, f. 11. ágúst 1983, d. 9. janúar 2011, og María Björk, f. 26. júlí 1993, unnusti hennar er Anton Bessi Sigurðsson.

Útör Harðar Inga fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 25. október 2024, og hefst athöfnin
klukkan 13.

Elsku Hörður Ingi minn, missir þinn er mikill, söknuður er sár í hjörtum okkar. Þú varst einstakur, hugljúfur, góður, hjálpsamur drengur. Við feðgar hjálpuðumst að, þú lagaðir og settir upp símana og tölvurnar, það lék í höndunum þínum, á meðan ég sá um bílana. Á þínum yngri árum fóruð þið vinirnir niður

...