Viggó Kristjánsson átti stórleik fyrir Leipzig þegar liðið tapaði með minnsta mun fyrir Melsungen, 27:28, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöldi. Viggó skoraði sex mörk og gaf þrjár stoðsendingar. Andri Már Rúnarsson bætti við tveimur mörkum fyrir Leipzig sem faðir hans Rúnar Sigtryggsson þjálfar. Elvar Örn Jónsson skoraði eitt mark fyrir Melsungen en Arnar Freyr Arnarsson komst ekki á blað. Melsungen fór með sigrinum á topp deildarinnar með 14 stig en Leipzig er í 10. sæti með átta stig.

Danska knattspyrnusambandið hefur ráðið Brian Riemer sem landsliðsþjálfara karla í fótbolta. Hann tekur við af Kasper Hjulmand sem hætti með danska liðið eftir EM í sumar. Riemer var rekinn frá belgíska félaginu Anderlecht fyrir aðeins mánuði síðan.

...