40 ára Orri ólst upp í Garðabæ og býr í Hafnar­firði. Hann er rekstrarfræðingur og verkefnastjóri að mennt frá Háskólanum í Reykjavík og rekur ráðgjafar- og hönnunarfyrirtækið O. Rosenkranz ehf. Áhugamálin eru stangveiði, hlaup og almenn hreyfing.


Fjölskylda Maki Orra er Sunna Björg Skarphéðinsdóttir, f. 29.8. 1988, gæðastjóri og lífeðlisfræðingur. Börn þeirra eru Gabríel Arnar Rósenkranz, f. 2014, Brynjar Hrafn Rósenkranz, f. 2017, og Rebekka Rósenkranz, f. 2022. Foreldrar Orra eru Lóló Rósenkranz, f. 1949, íþróttakennari og einkaþjálfari, og Sævar Baldursson, f. 1947, fv. kaupmaður.