Þór frá Þorlákshöfn tyllti sér á topp úrvalsdeildar karla í körfuknattleik með því að vinna góðan útisigur á nýliðum ÍR í 4. umferð deildarinnar í gærkvöldi. ÍR-ingar eru á botninum án stiga. Íslandsmeistarar Vals unnu á sama tíma öruggan sigur á bikarmeisturum Keflavíkur á Hlíðarenda. Valur hefur nú unnið tvo leiki í röð eftir erfiða byrjun en Keflavík hefur aðeins unnið einn leik. Álftanes vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu gegn KR í Vesturbæ og Njarðvík lagði Hött á Egilsstöðum. » 26