Ofanritaður, sem er fæddur árið 1991, tók upp á því á dögunum að byrja að horfa á þættina Columbo frá fyrstu seríu, en hún kom út árið 1971. Faðir minn var þriggja ára þegar fyrsti þátturinn kom út og er óhætt að segja að ég var ekki orðinn hugmynd á þeim tíma
Góður Peter Falk fer á kostum sem Columbo.
Góður Peter Falk fer á kostum sem Columbo. — Columbo

Jóhann Ingi Hafþórsson

Ofanritaður, sem er fæddur árið 1991, tók upp á því á dögunum að byrja að horfa á þættina Columbo frá fyrstu seríu, en hún kom út árið 1971. Faðir minn var þriggja ára þegar fyrsti þátturinn kom út og er óhætt að segja að ég var ekki orðinn hugmynd á þeim tíma.

Ég ákvað fyrir svolitlu að búa til mjög langan lista yfir þætti sem vöktu athygli hjá mér. Úr varð listi með um 300 þáttaröðum, sem ýmist fengu mjög góða dóma hjá gagnrýnendum eða mér þótti einfaldlega spennandi.

Columbo komst á listann, þar sem um verðlaunaþætti er að ræða. Þeir hlutu mikið lof gagnrýnenda og eru sögufrægir. Til að velja næstu þáttaröð dreg ég jafnan einfaldlega úr þáttunum á listanum og Columbo kom úr hattinum. Fyrst um sinn var ég lítið spenntur að horfa á

...