Nokkrir framboðslistar Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins voru samþykktir í gærkvöldi. Á listunum er að finna þekkt nöfn nokkurra frambjóðenda sem ekki hafa áður verið kjörnir til Alþingis. Þar á meðal eru Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn, Víðir Reynisson sviðsstjóri almannavarna, Jón Gnarr fyrrverandi borgarstjóri, Aðalsteinn Leifsson fyrrverandi ríkissáttasemjari og Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri Ísafjarðar.

Listi Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi var samþykktur og ber þar helst að nefna að Jón Gunnarsson hefur ákveðið að taka 5. sæti

...