Alexander Jóhannesson fæddist í Reykjavík 10. maí 1939. Hann andaðist á Landspítalanum 13. október 2024.

Foreldrar hans voru Jóhannes Steinn Ólafsson, f. 14. maí 1900, d. 11. maí 1979, og Kristín Alexandersdóttir, f. 27. ágúst 1898, d. 15. desember 1986.

Systkini Alexanders sammæðra voru: Ágústa Guðmundsdóttir, f. 18. ágúst 1920, d. 25. ágúst 1920; Skarphéðinn K. Loftsson, f. 27. júlí 1922, d. 28. júní 2001, kvæntur Erlu K. Þorvaldsdóttur, áttu þau tvö börn. Alsystkini: Ólafur, f. 17. október 1927, d. 4. október 1976, tvíkvæntur Gyðu Jónasdóttur og Thoru Hamer og átti hann níu börn; Ebba Guðbjörg, f. 23. september 1931, d. 13. ágúst 2023, tvígift Gunnari Björgvini Jónssyni og Kristni Hallbirni Þorgrímssyni og átti hún þrjú börn með Gunnari; Reynir, f. 28. maí 1942, fyrrverandi sambýliskona Kristín G. Sigurðardóttir og fyrrverandi eiginkona

...