Sigurður Gunnlaugsson fæddist á Akureyri 24. ágúst 1929. Hann lést 15. október 2024.

Foreldrar hans voru Hulda Guðmundsdóttir, f. 1904, d. 2002 og Gunnlaugur Jónsson, f. 1897, d. 1980. Fósturfaðir Sigurðar var Gunnlaugur Sigurður Jónsson, f. 1900, d. 1989.

Systkini hans voru Björn, f. 1922, Sigurlína, f. 1924, bróðir sammæðra Guðmundur, f. 1933. Bræður samfeðra Jón Bergvin, f. 1936 og Gunnlaugur, f. 1941. Systkinin eru öll látin.

Sigurður kvæntist árið 1951 Arnþrúði Margréti Jóhannesdóttur sjúkraliða, f. 25. júlí 1931, frá Gunnarsstöðum í Þistilfirði, d. 28. júní 2011. Arnþrúður og Sigurður eignuðust fimm börn: 1) Aðalbjörg, f. 1951, maki Gísli Eiríksson, börn þeirra: Eiríkur, f. 1979, maki Vilborg Guðjónsdóttir, börn hans: Arna Karitas, f. 2007 og Pétur, f. 2010. Greipur, f. 1982, í sambúð

...