Leikarinn Idris Elba hyggst flytja til Afríku til að styrkja afrískan kvikmyndaiðnað sunnan Sahara. Segir á vef Guardian að leikarinn ætli að hjálpa til við að gera afrískar kvikmyndir sem snúist ekki um nýlendustefnu heldur endurspegli sögur…
Afríka heillar Idris Elba er með plön.
Afríka heillar Idris Elba er með plön.

Leikarinn Idris Elba hyggst flytja til Afríku til að styrkja afrískan kvikmyndaiðnað sunnan Sahara. Segir á vef Guardian að leikarinn ætli að hjálpa til við að gera afrískar kvikmyndir sem snúist ekki um nýlendustefnu heldur endurspegli sögur ríkjanna, hefðir þeirra, menningu og tungumál. Eftir að hafa áður tilkynnt þau áform sín að byggja kvikmyndaver í Tansaníu sagði leikarinn að til að þau yrðu að veruleika þyrfti hann að flytja í álfuna.