Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, neyddist í gær til þess að gera eina breytingu á leikmannahópi sínum fyrir vináttulandsleikina gegn Bandaríkjunum. Fanney Inga Birkisdóttir hlaut höfuðmeiðsli á æfingu í…
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, neyddist í gær til þess að gera eina breytingu á leikmannahópi sínum fyrir vináttulandsleikina gegn Bandaríkjunum. Fanney Inga Birkisdóttir hlaut höfuðmeiðsli á æfingu í vikunni og hefur Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving verið kölluð inn í hópinn í hennar stað. Fyrri leikur liðanna fór fram í Austin í nótt og síðari leikur liðanna fer fram á sunnudaginn í Nashville.