Endurkoma Bandaríska leikkonan Eva Mendes kveðst aðeins geta hugsað sér að snúa aftur á hvíta tjaldið verði það með eiginmanninum, Ryan Gosling. Þetta segir hún í samtali við The Sunday Times en áratugur er líðinn síðan hún lék síðast í kvikmynd. Þau hafa leikið saman í tveimur myndum og Mendes segir Gosling hafa náð meiru út úr henni en aðrir. Annars kveðst hún ekki vera merkileg leikkona, án þess að vera að tala sig niður, og að hún hafi oftar en ekki fengið fyrirsjáanleg hlutverk. Bestu augnablikin hafi komið í myndum með afburðafólki.