Ellý fæddist 17. maí 1929. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Grund 26. september 2024.

Ellý fæddist í fríríkinu Danzig í Vestur-Prússlandi, dóttir hjónanna Jóhanns Gottfrieds Waschkau og Ágústu Charlotte Waschkau. Systkini hennar voru Herbert, Heinz, Helmund, Bernhard, Charlotte Louise, Willy, Ervin, Hildegard og Ottó. Willy og Ervin lifa systkini sín.

Ellý giftist Halldóri Kristbirni Ingólfssyni og eignuðust þau fjögur börn, sem eru: 1) Jóhann Ingólfur, konan hans var Soffía Kristín Kawzenko sem andaðist 27. desember 2022. Börn þeirra eru Halldór Valec, Magnús Björn, Jóhann Kristinn og Sara María. 2) Björn Ottó, maki hans er Sigrún Halla Gísladóttir. Börn Björns eru Gísli Kristbjörn, Kristbörn Helgi, Katrín Elly, Björn Ragnar og Birgir Magnús. 3) Erla Dóris og er maður hennar Gunnar Hálfdánarson og eiga þau soninn Hálfdán Inga. 4) Guðlaug

...