Sigurbjörg Eiríksdóttir fæddist 28. maí 1963. Hún lést 11. október 2024. Útför fór fram 21. október 2024.

Það er sárt að kveðja þig elsku mamma mín. Hjarta mitt grætur en um leið er ég svo þakklát að vita að þú sért komin á góðan stað og ég trúi því að þér líði vel.

Tíminn sem við fengum saman er ómetanlegur og mun ylja mér um hjartarætur um ókomna tíð eða þangað til við hittumst á ný. Minningum frá barnæsku og fram á fullorðinsár bregður núna fyrir án nokkurs fyrirvara og reyna að fylla upp í tómarúmið sem hefur myndast. Veikindi þín bar brátt að og það var sannarlega ekki langur tími til að vinna úr áfallinu. Þrátt fyrir það og blendnar tilfinningar vorum við sammála um að við hefðum átt einar af okkar bestu stundum saman. Við nutum augnabliksins, við hlógum og grétum.

Í gegnum lífið varst þú mér mikil og

...