Skálmöld skilur gjarnan allt eftir á sviðinu.
Skálmöld skilur gjarnan allt eftir á sviðinu. — Morgunblaðið/Eggert

Gert er ráð fyrir þrumum og (skálm)eldingum þegar víkingamálmbandið Skálmöld spilar allar hljóðversplöturnar sínar sex á þremur kvöldum í Eldborg um næstu helgi. Öll kvöldin verða sett upp þannig að bandið spilar eina plötu fyrir hlé og aðra eftir hlé. Allra hörðustu aðdáendum gefst því tækifæri til þess að heyra hvert einasta lag sem sveitin hefur sett á breiðskífu við bestu mögulegu aðstæður, að því er fram kemur í kynningu. Kammerkórinn Hymnodia verður strákunum til halds og trausts en annars mun tónlistin njóta sín í upprunalegri útgáfu. Textum verður varpað upp á tjald og sitthvað fleira gert fyrir augu og eyru. Á föstudaginn leikur Skálmöld Sorgir og Börn Loka. Á laugardag verða Með vættum og Vögguvísur Yggdrasils á efnisskránni og á sunnudaginn Ýdalir, sem er nýjasta verk bandsins, og Baldur, sem kom út fyrst. Allir tónleikar hefjast kl. 20.