Lagt er til í frumvarpi fjármálaráðherra til fjáraukalaga ársins 2024 að embætti landlæknis fái millifært framlag til að fjármagna stöðugildi tveggja sérfræðinga embættisins vegna stöðu kvartanamála.
Fram kemur í greinargerð að málum vegna kvartana hefur fjölgað hjá embætti landlæknis á undanförnum árum. Eru um þessar mundir um það bil 400 mál vegna kvartana til meðferðar hjá embættinu.
...