Wales Jón Daði Böðvarsson er kominn til velska liðsins Wrexham.
Wales Jón Daði Böðvarsson er kominn til velska liðsins Wrexham. — Ljósmynd/Wrexham

Knattspyrnumaðurinn Jón Daði Böðvarsson hefur gert samning við velska knattspyrnufélagið Wrexham sem gildir til áramóta. Liðið leikur í ensku deildakeppninni og er í C-deildinni um þessar mundir. Eigendur Wrexham eru Hollywood-leikararnir Ryan Reynolds og Rob McElhenney. Liðið hefur farið upp um tvær deildir á síðustu tveimur tímabilum og er sem stendur í öðru sæti C-deildarinnar. Jón Daði var án félags eftir tíma sinn hjá Bolton.