Tvenna Chris Wood skoraði tvö mörk fyrir Forest gegn Leicester.
Tvenna Chris Wood skoraði tvö mörk fyrir Forest gegn Leicester. — AFP/Darren Staples

Nottingham Forest hafði betur gegn nýliðum Leicester, 3:1, á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöldi. Með sigrinum fór Forest upp í fimmta sæti deildarinnar, þar sem liðið er með 16 stig. Leicester er í 14. sæti með níu stig. Ryan Yates kom Forest yfir á 16. mínútu en sjö mínútum síðar jafnaði Jamie Vardy og var staðan í leikhléi 1:1. Chris Wood kom Forest aftur yfir á 47. mínútu og þrettán mínútum síðar gerði hann annað mark sitt og þriðja mark Forest.