Barry Keoghan er eftirsóttur.
Barry Keoghan er eftirsóttur. — AFP/Olivia Wong

Frami Nýjasta kvikmynd írska leikarans Barrys Keoghans, sem sló í gegn í Saltburn í fyrra, kallast Bird. Keoghan leikur þar óskipulagðan ungan föður sem reynir að ala börn sín upp við krappan kost. Leikstjóri er Andrea Arnold og með önnur helstu hlutverk fara Nykiya Adams og Franz Rogowski. Svo virðist sem Keoghan hafi mikla trú á Bird en hann hafnaði hlutverki í Gladiator II til að gera hana. Einkalíf Keoghans hefur ekki vakið minni athygli undanfarið en kvikmyndaferillinn en hann hefur verið að slá sér upp með söngkonunni vinsælu Sabrinu Carpenter. Þá er hann í nýjum auglýsingum Manchester United ásamt frænda sínum Frank Stapleton.