Kristján Loftsson
Kristján Loftsson

Hvalur hf. hefur sent umsókn um leyfi til hvalveiða til matvælaráðuneytisins.

Í umsókninni, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, er þess óskað að leyfið verði veitt ótímabundið eða að það gildi til fimm eða tíu ára og framlengist sjálfkrafa um eitt ár í senn í lok hvers starfsárs. Fyrirtækið sendi umsóknina til ráðuneytisins um miðja þessa viku. » 11