Sama Alex Van Halen, trymbill bandaríska rokkbandsins Van Halen, staðfestir í samtali við Billboard að hann hafi ekki haft neinn áhuga á því að taka þátt í tónleikaferð sinna gömlu félaga, Michaels Anthonys og Sammys Hagars, fyrr á þessu ári til að…
Sama Alex Van Halen, trymbill bandaríska rokkbandsins Van Halen, staðfestir í samtali við Billboard að hann hafi ekki haft neinn áhuga á því að taka þátt í tónleikaferð sinna gömlu félaga, Michaels Anthonys og Sammys Hagars, fyrr á þessu ári til að heiðra bandið og minningu gítarleikarans, Eddies Van Halens, bróður Alex. Svo sem fram hefur komið svaraði Alex ekki einu sinni í símann þegar bera átti erindið upp. „Bandið nýtur ekki sannmælis þarna. Annars gera þeir bara það sem þeim sýnist. Það er ekki mitt mál,“ sagði Alex. Von er á endurminningum hans, Brothers, þar sem lítið mun víst fara fyrir Hagar sem leysti David Lee Roth af við hljóðnemann.