Jens Guðmundur Hjörleifsson fæddist 13. nóvember 1927. Hann lést 7. október 2024.

Útför Jens Guðmundar fór fram 23. október 2024.

Elsku Jenni afi.

Nú hefur þú yfirgefið þessa jarðvist og ert aftur kominn í fangið hennar ömmu.

Mín fyrsta minning um ykkur ömmu er þegar ég var 7 ára og var í pössun hjá ykkur í Hnífsdal. Þú brallaðir margt og mikið með okkur systkinunum þá. Það var alltaf svo gaman að fá að fara með þér í frystihúsið, í bíltúr á Ísafjörð, fara með þér í búðina og í berjamó með ykkur ömmu. Húsið ykkar í Hnífsdal var ævintýri fyrir litla krakka og þar var sko gaman í feluleik. Ég var samt alltaf smá hrædd við kjallarann undir húsinu þar sem þú sagðir að þangað færu óþekku börnin. Ég var greinilega ekkert svo óþekk hjá ykkur því aldrei þurfti ég að fara

...