Sjálfstæðisflokkurinn mun nú eins og alltaf áður vera skýr valkostur þeirra sem vilja standa vörð um frelsið.

Úr ólíkum áttum

Úr ólíkum áttum

Þórdís Kolbrún R.

Gylfadóttir

thordiskolbrun@althingi.is

Sjálfstæðisflokkurinn hefur í 95 ár staðið á traustum grunni góðra gilda. Saga lýðveldisins er sterk, árangurinn er augljós. Framfarasaga íslensks samfélags er samofin sögu Sjálfstæðisflokksins. Eftir fimm vikur verður kosið og fjárfest í stjórnmálum og hugsjónum til næstu fjögurra ára.

Ég vona að baráttan fram undan muni snúast um það sem mestu máli skiptir og við berum gæfu til að bera virðingu fyrir því að alvörustjórnmál skipta máli. Þetta er ekki leikur eða leikrit. Töfralausnir eru einmitt það; pólitískar sjónhverfingar en ekki raunveruleiki. Vinstri ringulreið er ekki svarið við þeim

...