Markahæstur Úlfar Páll Monsi Þórðarson var markahæstur á vellinum.
Markahæstur Úlfar Páll Monsi Þórðarson var markahæstur á vellinum. — Morgunblaðið/Óttar

Fram og Valur skildu jöfn, 31:31, í æsispennandi og bráðskemmtilegum leik í áttundu umferð úrvalsdeildar karla í Framhöllinni í Úlfarsárdal í gærkvöldi.

Fram er eftir jafnteflið áfram í fimmta sæti en nú með níu stig. Valur heldur þá þriðja sætinu en er nú með tíu stig.

Framarar voru yfir stærstan hluta leiks, en Valsmönnum tókst að knýja fram jafntefli með góðum lokakafla. Ekkert var þó skorað síðustu tvær mínúturnar.

Úlfar Páll Monsi Þórðarson var markahæstur með tíu mörk fyrir Val og Reynir Þór Stefánsson gerði sjö fyrir Fram.