Ribeye-nautasteik

2 stk. ribeye-nautasteik (400 g/200 g stk.)

2 msk. smjör

2 stk. greinar rósmarín

2 stk. hvítlauksgeirar

salt eftir smekk

ólífuolía

Hitið pönnu á hæsta hita og setjið ólífuolíu á hana. Kryddið næst steikurnar með góðu magni af salti og byrjið að steikja og ekki hreyfa við steikinni á pönnunni í rúmar 4-5 mínútur, því þið viljið góða brúningu á hana. Snúið steikinni síðan við og gerið alveg eins hinum megin.

Bætið síðan við smjöri og kryddi og leyfið að freyða yfir steikina og ausið yfir með skeið. Takið steikurnar af pönnunni og látið hvíla í rúmar

...