Ekki er nú tuska meðal hátíðlegri orða ísl enskunnar, gólftuska er gott dæmi; talað er um að fara með e-n eins o g tusku: niðurlægja e-n, níðast á e-m

Ekki er nú tuska meðal hátíðlegri orða ísl enskunnar, gólftuska er gott dæmi; talað er um að fara með e-n eins o g tusku: niðurlægja e-n, níðast á e-m. Þetta sárnar manni, svo mikilvægar sem tuskur eru siðuðu lífi. E-ð er eins og blaut tuska framan í e-n merkir e-ð kemur óþyrmilega við e-n. „Köld tuska“ gerir ekki sama gagn.