Maður kom í gær í anddyri lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu með stungusár á fæti. Maðurinn var fluttur á bráðamóttöku til skoðunar.
Lögreglan handtók annan mann skömmu síðar grunaðan um verknaðinn.
Alls voru níu manns vistaðir í fangaklefa lögreglunnar í gær.