Ísland hafði betur gegn Póllandi, 30:24, í fyrri vináttuleik liðanna í handknattleik kvenna í Framhöllinni í Úlfarsárdal í gærkvöldi. Liðin mætast í öðrum vináttulandsleik á Selfossi klukkan 16 í dag. Ísland var með níu marka forskot í hálfleik, 18:9. Pólland minnkaði aðeins muninn í seinni hálfleik en sannfærandi íslenskur sigur varð raunin. Elín Klara Þorkelsdóttir var markahæst í íslenska liðinu með sjö mörk. » 48