Samstarf Floor Jansen söngkona Nightwish verður gestur á væntanlegri breiðskífu Flóaþrassbandsins ólseiga Testament. Þetta upplýsir Chuck Billy söngvari í samtali við AMFM Magazine. Hann gengur ekki svo langt að kalla lagið sem þau syngja saman…
Samstarf Floor Jansen söngkona Nightwish verður gestur á væntanlegri breiðskífu Flóaþrassbandsins ólseiga Testament. Þetta upplýsir Chuck Billy söngvari í samtali við AMFM Magazine. Hann gengur ekki svo langt að kalla lagið sem þau syngja saman ballöðu en það sé þó hægara en menn eigi að venjast frá bandinu. Strengjasveit mun einnig koma við sögu. „Lagið er alveg geggjað, mjög gott,“ segir Billy.