ÍBV vann öruggan sigur á KA, 36:31, í úrvalsdeild karla í Vestmannaeyjum á laugardaginn. Dagur Arnarsson skoraði átta mörk fyrir ÍBV, Gauti Gunnarsson og Andri Erlingsson sex hvor, en Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði níu mörk fyrir KA-menn sem sitja eftir í neðsta sæti deildarinnar. ÍBV er í sjötta sæti.