Haukar eru komnir í 32-liða úrslit Evrópubikars karla í handbolta eftir sigur á Cocks í Finnlandi, 29:27, á laugardaginn. Haukar unnu áður heimaleikinn 35:26. Adam Haukur Baumruk, Freyr Aronsson og Birkir Snær Steinsson skoruðu fjögur mörk hver fyrir Hauka. Dregið verður til 32-liða úrslitanna á morgun.