Ísland sigraði Finnland, 2:1, í vináttuleik U23 ára liða kvenna í knattspyrnu í Riihimaki í gær. Finnar unnu fyrri leik liðanna á fimmtudag, 3:0. Markvörður Finna fékk rautt spjald á 26. mínútu og Bergdís Sveinsdóttir og Ísabella Sara Tryggvadóttir komu Íslandi í 2:0 á 43. og 82. mínútu en Finnar minnkuðu muninn í blálokin.