Róbert Örn Hjálmtýsson fæddist 5. júlí 1977. Hann lést 10. júní 2024.

Útförin hans fór fram 24. júní 2024.

Líf er nú á enda sem kemur ekki aftur en lifir áfram í sálum og hjörtum okkar sem hafa upplifað gleði, hlátur, umhyggju, ást og sorg Róberts Arnar.

Róbert, minn kæri vinur, var alveg einstakur og litaði hann tilveru okkar allra sem hann þekktum með öllum litum alheimsins á stórkostlegan hátt svo úr varð gullfallegt málverk sem við geymum svo innilega í hugum okkar það sem eftir er.

Hann var einstakur maður og einstakur listamaður.

Það er alveg magnað hvað Róbert fór alltaf óhefðbundnar leiðir í lífinu og tónlist sinni. List hans og sköpun var langt yfir meðallagi á okkar tímum, þar sem yfirborðskennd listsköpun er oft

...