Reynir Björnsson fæddist á Akureyri 28. janúar 1939. Hann lést á líknardeild LSH í Kópavogi 16. október 2024 eftir stutt veikindi.

Foreldrar hans voru Björn Laxdal Jónsson bifreiðastjóri, f. 9. mars 1905, d. 29. janúar 1975, og Kristjana Kristjánsdóttir saumakona, f. 13. desember 1909, d. 7. september 1999. Systkini Reynis eru Sigrún, f. 8. júlí 1941, Ævar, f. 10. september 1942, og Björg, f. 10. nóvember 1943.

Eftirlifandi eiginkona Reynis er Dóra Magnúsdóttir, f. 15. september 1941. Foreldrar hennar voru Sabína Unnur Jóhannsdóttir, f. 13. janúar 1911, d. 3. október 2012, og Magnús Hall Hallgrímsson, f. 22. september 1912, d. 8. apríl 1942.

Þau gengu í hjónaband 12. október 1960. Börn þeirra eru: 1) Björn, f. 4. ágúst 1960, maki Sigurbjörg Albertsdóttir, f. 15. nóvember 1956. Synir þeirra

...